Myrkvun svefnherbergja og eiginleikar þeirra
Vorið er komið og með því er hækkandi sól. Svo mikið hækkar sólin á Íslandi að það er bjart allan sólarhringinn og það getur truflað svefn og þá sérstaklega svefn barnanna.
Ef þú ert að velja þér tjald og ert að spá í mismunandi gerðum svefnherbergja og myrkvun þeirra þá erum við búnir að taka saman nokkur atriði sem gott er að hafa í huga.
Outwell Dark Inner svefnherbergi
Hjá Outwell eru þægindi í fyrirrúmi og þess vegna bjóða þeir upp á svefnherbergi sem eru bæði með góða myrkvun og lengri. Hurðirnar eru með Quick and Quiet Entry seglahurðum, sem er einstaklega hljóðlát og þægileg. Einnig er góð loftun með panelum sem hægt er að hafa opna til að minnka raka inni í svefnherbergjunum og lokaða fyrir meiri myrkvun. Gott aðgengi er fyrir rafmagnskapla og vasar til að geyma smádót.
-
Dark Inner
-
Lengd herbergja 220 cm
-
Allt að 70 cm breidd á mann
Coleman Blackout
Svefnherbergin hjá Coleman loka úti 99% birtu og hægja á hitnun innan herbergjana sem kemur sér vel sérstaklega á morgnanna. Einnig þá hægir það ögn á kólnun líka og er herbergið því 1 gráðu hlýrra heldur en ef það væri án þessarar tækni.
-
99% Blackout Bedroom
-
Lengd herbergja 215 cm
-
Allt að 70 cm breidd á mann
Vango Midnight svefnherbergi
Í Skotlandi eru þeir í svipaðri stöðu og við á Íslandi með sólina og þess vegna hafa þau hjá Vango verið að stórbæta myrkvun í svefnherbergjunum sínum síðustu ár. Midnight svefnherbergin eru með mjög góðri myrkvun og af uppblásnu tjöldunum sem við bjóðum upp á eru þau vinningshafinn í þessum málum.
-
Midnight bedroom
-
Lengd herbergja 210 cm
-
Allt að 70 cm breidd á mann
Safarica
Frá Hollandi koma Safarica tjöldin og í þeim eru svefnherbergi með myrkvun og þau eru extra löng, 230 cm, sem gefur þér pláss bæði til að sofa og geyma töskur og slíkt við fótinn. Góð loftun er í herbergjunum
-
Extra löng herbergi 230 cm
-
Allt að 75 cm breidd á mann
Fyrir fleiri góð ráð í útileguna skaltu kíkja í Fróðleik hjá okkur og þar finnur þú m.a. ráð fyrir betri svefn, praktísk atriði og fleira.