Fáðu pökkunarlistann okkar og afsláttarkóða sem þú getur nýtt strax um leið og þú skráir þig á póstlistann okkar!
Thunderstorm High Pressure 12V pumpan er hönnuð til að blása hratt og áreiðanlega upp lofttjöld, uppblásin húsgögn og fleira, með nákvæmri þrýstistýringu og sjálfvirkri stöðvun þegar settum þrýstingi er náð. Henni er stungið í samband í kveikjaratengi í bílnum.
Thunderstorm dælan er smá og meðfærileg með handfangi og LCD skjárinn gerir stillingu loftþrýstings einfaldan í allt að 20 PSI.
Þegar völdum þrýsting er náð, stöðvast dælan sjálfkrafa. Hún kemur með sjö mismunandi stútum og mjúkri sveigjanlegri slöngu.
Sjálfkælikerfið með tvöföldum hitadreifurum heldur hitastigi dælunnar góðu, jafnvel við langvarandi notkun, sem tryggir betri endingu.
Tæknileg atriði:
Þyngd: 1.0 kg
Stærð: 17.9 x 15.5 x 8.2 cm
Aflgjafi: DC 12V, 10A hámark
Blásturshraði: 350 L/mín (stig 1), 80 L/mín (stig 2)
Þrýstihæfni: Upp í 20 PSI
Litur: Blue Shadow
Aukahlutir: 7 stútar, Outwell FHF lokafesting, burðarpoki, 12V kapall