Sherwood Air 400XL uppblásið tjald

Venjulegt verð289.990 kr
/
Öll verð eru með vsk.

  • Frí heimsending á pöntunum yfir 15.000 kr
  • Lítið eftir - 2 stk eftir
  • Afgreitt eftir 1-2 virka daga

Ennþá meiri vatnsheldni, myrkvuð svefnherbergi og auðvelt að tjalda

Vango tjöld hafa lengi verið vinsæl meðal Íslendinga og nú er eitt flottasta uppblásna tjaldið á Íslenskum markaði mætt! Sherwood Air 400XL er úr Excel línunni sem er það flottasta sem kemur frá Vango.

  • Myrkvuð "Midnight" svefnherbergi
  • 5000mm vatnsheldni - vatnsheldnasta tjaldið okkar
  • Mjög auðvelt að tjalda
  • Enn sterkara efni

Tvö myrkvuð og rúmgóð Midnight svefnherbergi sem draga úr birtu og bæta svefn. Svefnherbergin eru sínhvor 140 x 210 cm með skilrúmi sem hægt er að gera að einu.

Sherwood Air 400XL ver þig og þína fyrir náttúruöflunum og er með 5000mm vatnsheldni með límdum saumum og er því gríðarlega vel búið tjald fyrir íslenskt veðurfar. Sentinel Excel efnið í tjaldinu er 150D og er því mjög sterkt og hannað til að vera endingargott og standast krefjandi aðstæður.

Einfalt er að lofta um tjaldið með loftunaropum og báðar hurðar inn í aðalrými eru með flugnanetum sem leyfir lofti að flæða í gegn en heldur flugum frá.

Auðvelt er að koma rafmagnssnúrum snyrtilega að frá tjaldsvæði í gegnum litlar renndar lúgur við botn tjaldsins.

Pumpa og stór taska fylgir með.

 

Tæknileg atriði:

  • Fjöldi: 4 manna
  • Súlur: Uppblásnar loftsúlur
  • Þyngd: 34.3kg
  • Lengd: 695.0cm
  • Hæð: 205.0cm
  • Breidd: 300.0cm
  • Pökkuð stærð: L82.0 x H39.0 x B53.0cm
  • Vatnsheldni: 5000mm
  • Efni: Sentinel Fabric
  • Stór taska og pumpa

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.


Nýlega skoðað