Vango Savannah Air 400 uppblásið tjald - séð frá vinstri hlið að framan | URSA
Vango Savannah Air 400 - hliðarskot af tjaldinu með gluggum og svölum | URSA
ango Savannah Air 400 - séð frá hægri hlið með opnum hurðum | URSA
Vango Savannah Air 400 - bakhlið tjaldsins með gluggum | URSA
Vango Savannah Air 400 - framhlið án svala með opnum inngangi | URSA
Vango Savannah Air 400 - framhlið með opnum hurðum og sýnilegu innrými | URSA
Vango Savannah Air 400 grunnmynd - stærðir og planlýsing með svefnherbergjum | URSA
Vango Savannah Air 400 kynningarmyndband - tjaldið í notkun úti í náttúrunni | URSA
Vango Savannah Air 400 eiginleikaskýringarmynd - AirBeam, Sentinel efni og gluggar | URSA
Vango Savannah Air 400 - nærmynd af festiböndum og spennuölum | URSA
Vango Savannah Air 400 - náttúrmynstur á innri gólfmottu | URSA
Vango Savannah Air 400 - nærmynd af Vango rennilás og dragara | URSA
Vango Savannah Air 400 - vatnsdropi á Sentinel efni sýnir vatnsheldni | URSA
Vango Savannah Air 400 - AirVenti loftræsingarkerfi í nærskoti | URSA
Vango Sentinel efniseiginleikar - 4000mm vatnsheldni og ColourLok Eco | URSA
Vango ColourLok Eco tækni - umhverfisvæn litavernd og UV-vörn | URSA

Savannah Air 400 uppblásið tjald

Venjulegt verð215.990 kr
/
Öll verð eru með vsk.

  • Frí heimsending á pöntunum yfir 15.000 kr
  • Til á lager
  • Afgreitt eftir 1-4 virka daga

Myrkvuð svefnherbergi og góð vatnsheldni

Vango tjöld hafa lengi verið vinsæl meðal Íslendinga og það verður ekkert öðruvísi sumarið 2026!

  • Myrkvuð "Midnight" svefnherbergi
  • 4000mm vatnsheldni
  • Mjög auðvelt að tjalda

Tvö myrkvuð og rúmgóð Midnight svefnherbergi sem draga úr birtu og bæta svefn. Svefnherbergin eru sínhvor 140 x 210 cm með skilrúmi sem hægt er að gera að einu.

Þú getur verið áhyggjulaus í Savannah Air 400, tjaldið er áreiðanlegt og er með 4000mm vatnsheldni með límdum saumum og er því tilbúið í íslenskt veður. Dynamic weave 100 efnið í tjaldinu er sterkt og hannað til að standast krefjandi aðstæður.

Það er hefur aldrei verið einfaldara að tjalda eins og nú. Þú reisir tjaldið á 10 mínútum og getur þá sett í það borð, stóla, dýnur, svefnpoka, töskur og fl.

Einfalt er að lofta um tjaldið með loftunaropum og báðar hurðar inn í aðalrými eru með flugnanetum sem leyfir lofti að flæða í gegn en heldur flugum frá.

Auðvelt er að koma rafmagnssnúrum snyrtilega að frá tjaldsvæði í gegnum litlar renndar lúgur við botn tjaldsins.

Pumpa og stór taska fylgir með.

 

Tæknileg atriði:

  • Fjöldi: 4 manna
  • Súlur: Uppblásnar loftsúlur
  • Þyngd: 24.4kg
  • Lengd: 600.0cm
  • Hæð: 205.0cm
  • Breidd: 300.0cm
  • Pökkuð stærð: L80.0 x H45.0 x B45.0cm
  • Vatnsheldni: 4000mm
  • Efni: Sentinel Fabric
  • Stór taska og pumpa

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.


Nýlega skoðað