Fáðu pökkunarlistann okkar og afsláttarkóða sem þú getur nýtt strax um leið og þú skráir þig á póstlistann okkar!
Outwell Michigan 4 Air uppblásna tjaldið er rúmgott 4 manna fjölskyldutjald, hannað með áherslu á þægindi, gott rými og einfaldleika. Tjaldið er með tveimur Dark Inner myrkvuðum svefnherbergjum sem dregur úr birtu og bætir svefn. Eitt svefnherbergjanna er með Quick & Quiet hurð sem notar segla til að opna og loka hljóðlaust, auk rennilása fyrir öruggari lokun þegar þess er þörf. Einnig er hægt að taka skilrúm í svefnherbergjum niður til að gera það að einu herbergi.
Michigan 4 Air er með háa innri lofthæð (225 cm) og rúmgóðu alrými sem hentar vel fyrir fjölskyldur eða minni hópa. Tjaldið er með tveimur inngöngum: stórri framhurð sem hægt er að rúlla til hliðar og inngang á hlið inn í litla forstofu(e. wetroom) þar sem hægt er að geyma skó, kælibox og annað til að koma í veg fyrir að óhreinindi og raki fari inn í alrýmið.
Stöðugt og auðvelt að tjalda
Tjaldið er með fjórum loftsúlum sem auðvelt er að blása upp með meðfylgjandi pumpu. Álstangir milli loftsúlna bæta stöðugleika og halda tjaldinu sperrtu. Michigan 4 Air hefur verið prófað í vindi allt að 88 km/klst og er því vel til þess fallið að standast íslenskt veðurfar.
Tæknileg atriði: