Fáðu pökkunarlistann okkar og afsláttarkóða sem þú getur nýtt strax um leið og þú skráir þig á póstlistann okkar!
Frá Outwell í Danmörku kemur Florida 5 Air uppblásna tjaldið og er nýtt hjá þeim þetta árið. Tjaldið er klassískt braggatjald með stórum Dark Inner svefnherbergjum sem bæta svefn og draga úr birtu. Einfalt og þægilegt að tjalda með Rigid Air System sem tryggir hraða og örugga uppsetningu. Tjaldið er með Quick and Quiet seglahurðar á svefnherbergjum og inn í alrými.
Florida 5 Air skorar hátt í vindprófunum með Aerodynamic Storm Protection 9 vegna lögunar tjaldsins og storm strappa sem halda því. Tjaldið er með 6000mm vatnsheldni með límdum saumum, sem gerir það mjög hentugt fyrir íslenskar aðstæður.
Gott pláss er í tjaldinu í stóru alrými og sveigjanlegt fortjald er með Dual Front kerfi þar sem hægt er að breyta fortjaldinu í skyggni með því að renna hurðinni af. Ytra tjaldið er úr Outtex® 6000 RS polyester efni með ripstop sem er PFC frítt og gefur framúrskarandi vatnsheldni og styrk. Mjög fljótlegt og einfalt er að tjalda því og ætti að taka aðeins 21 mínútu að reisa það, eða 10 mínútur til að vera tilbúið að flytja inn dýnur, stóla, töskur og slíkt. Auðvelt er að koma rafmagnsköplum að í gegnum litla lúgu á hlið tjaldsins.
Í svefnherbergjunum eru Quick and Quiet hurðir með segulfestingu fyrir hljóðlausa opnun og lokun. Hægt er að rúlla upp gardínum að aftan til að auka loftflæði, og aftan á tjaldinu er loftræsti op til að bæta loftflæði, með möguleika á að loka alveg til að halda svefnherbergjunum dimmum.
Tæknileg atriði:
Efni: Outtex® 6000 Express RS polyester
Fjöldi: 5 manna
Súlur: Uppblásnar loftsúlur með Rigid Air System, stálstangir 19 mm
Þyngd: 32.0 kg
Lengd: 725.0 cm
Hæð: 210.0–220.0 cm
Breidd: 440.0 cm
Pökkunarstærð: L93.0 x H44.0 x B43.0 cm
Vatnsheldni: 6000 mm
UV-vörn: UPF 30+
Taska og pumpa fylgja