Skráðu þig á póstlistann og við sendum þér pökkunarlistann okkar svo þú gleymir engu fyrir næstu útilegu.
Outwell Alabama 6 Air TC er eitt glæsilegasta lúxus fjölskyldutjaldið í Outwell línunni og hentar þeim sem vilja hámarks þægindi, rými og vandaða upplifun í útilegunni. Þetta er stórt og vel útbúið 6 manna lofttjald úr öndunarbæru polycotton efni sem hjálpar til við að halda andrúmsloftinu í tjaldinu þægilegu, sérstaklega þegar veðrið breytist eða sólin skín á tjaldið.
Tjaldið er með OneAir System, sem þýðir að það er blásið upp frá einum stað og er því fljótlegt og þægilegt í uppsetningu miðað við stærð. Uppblásnar súlur gefa góða lofthæð og rúmgott innra rými svo nóg pláss sé fyrir hirslur, stóla, borð og slíkt.
Alabama 6 Air TC er einnig búið nýja 2026 Outwell Light System (OLS), innbyggðu ljósakerfi sem gengur fyrir USB-C aflgjafa og þarf því ekki sérstakar ONS rafhlöður. Ljósin eru dimmanleg og gefa hlýlega og notalega lýsingu í alrýminu, fullkomið fyrir kvöldin þegar fjölskyldan vill borða, spila eða slaka á inni í tjaldinu.
Svefnrýmin eru Dark 230 cm Ambassador Master Bedrooms, sem eru rúmgóð, myrkvuð og með góðri loftræstingu. Quick & Quiet hurðir gera aðgengi að svefnrýmunum hljóðlátara og þægilegra, sem skiptir miklu máli þegar einhver fer fyrr að sofa eða vaknar á undan hinum. Þetta er tjald sem er hannað með þægindi fjölskyldunnar í huga.
Framhliðin býður upp á mikinn sveigjanleika. Hægt er að nota tjaldið sem þriggja svæða tjald með lokuðu framrými, eða opna framhliðina og búa til rúmgóða skyggða verönd. Stórir gluggar, netpanellar og gardínur gefa góða birtu, loftflæði og næði eftir þörfum. Saumað vatnshelt gólf heldur raka, trekki og skordýrum úti, sem gerir dvölina inni mun þægilegri.
Þetta er tjald fyrir þá sem vilja ekki gera málamiðlanir. Alabama 6 Air TC er stórt, vandað og einstaklega vel útbúið tjald fyrir lengri útilegur, fjölskylduferðir og þá sem vilja hafa alvöru heimilisþægindi með sér á tjaldsvæðið.
Umhirða og ending
Til að tryggja góða endingu er mikilvægt að ganga vel frá tjaldinu eftir notkun. Aldrei skal pakka tjaldinu niður blautu til lengri tíma. Ef það þarf að pakka því niður í rigningu eða raka skal setja það upp aftur og leyfa því að þorna alveg eins fljótt og hægt er. Þetta á sérstaklega við um polycotton tjöld, þar sem röng geymsla getur valdið myglu, lykt og skemmdum á efninu.
Geymið tjaldið á þurrum og vel loftræstum stað, fjarri raka og miklum hita. Gott er að hreinsa óhreinindi varlega af með mjúkum bursta eða rökum klút, en forðast sterk hreinsiefni þar sem þau geta haft áhrif á vatnsvörn og eiginleika efnisins. Með réttri umhirðu heldur tjaldið sér betur og verður traustur ferðafélagi í mörg ár.
Eiginleikar:
Tæknileg atriði: