Skráðu þig á póstlistann og við sendum þér pökkunarlistann okkar svo þú gleymir engu fyrir næstu útilegu.
Vango Aurora Kingsize er rúmgóður og vandaður tveggja manna svefnpoki sem hentar vel fyrir útilegur, fellihýsi og hjólhýsi. Hann er bæði breiðari og lengri en hefðbundinn tvöfaldur svefnpoki og býður því upp á gott pláss til að sofa og slaka á.
Aurora Kingsize er 3ja árstíða svefnpoki með tvöfaldri einangrun sem hjálpar til við að halda hita yfir nóttina. Innra byrðið er úr mjúku 100% bómullarflannel og ytra byrðið úr polycotton efni sem gefur pokanum hlýlegt og vandað yfirbragð. Svefnpokann er einnig hægt að aðskilja og nota sem tvo staka svefnpoka þegar það hentar betur.
Eiginleikar
Tæknileg atriði