Skráðu þig á póstlistann og við sendum þér pökkunarlistann okkar svo þú gleymir engu fyrir næstu útilegu.
Obelink Summer 4 XL Easy Air CoolDark er nett og meðfærilegt uppblásið fjölskyldutjald fyrir allt að 4 manns. Tjaldið er með myrkvuðum svefnrýmum, rúmgóðu alrými og þremur uppblásnum súlum sem gera uppsetningu einfalda og fljótlega.
Summer 4 XL hentar vel fyrir fjölskyldur eða pör sem vilja þægilegt tjald sem er fljótlegt í uppsetningu, en samt með gott rými fyrir lengri útilegur. Myrkvuðu CoolDark svefnrýmin draga verulega úr birtu og hjálpa til við að halda svefnrýminu svalara lengur, sem getur skipt miklu máli á björtum sumarnóttum.
Tjaldið er með tvo innganga, góð loftunarop og skordýranet í hurðum, sem gerir auðvelt að lofta vel um án þess að hleypa flugum og skordýrum inn. Fastur botndúkur með upphækkuðum brúnum hjálpar einnig til við að halda raka og óhreinindum úti, en hægt er að leggja brúnina niður við aðalinnganginn til að auðvelda umgengni.
Eiginleikar:
Tæknileg atriði: