Cloud 2 kúlutjaldið er tveggja manna og hefur rúmgott fortjald með botni þar sem hægt er að geyma farangur, skó og annað. Tjaldið er einfalt í uppsetningu og sömuleiðis er fljótlegt að pakka því saman og því tilvalið fyrir ferðalög þar sem stoppað er stutt. Stangirnar eru gerðar úr trefjaplasti og eru því léttar og sterkbyggðar á sama tíma. Windguard 2.0 klippurnar eru áfastar við ytra tjaldið og festiru þær við stangirnar svo að tjaldið sé stöðugara í vindi. Allir saumar eru límdir, botninn er með tvöfalda húðun af polyethylene fyrir aukna vatnsheldni og ytra tjaldið er með 3000 mm vatnsheldni. Það hentar því mjög vel í stuttar útilegur.
2 manna
Vatnsheldni 3000 mm
Fljótlegt í uppsetningu
Tveir inngangar bæta loftræstingu og aðgengi
PFC frítt - engin eilífðarefni
Efnið er Outtex® 3000 pólýester sem dregur raka frá og verndar gegn UV-geislun (UPF 30+). Allir saumar eru límdir og botninn húðaður með tvöföldu polyethylene fyrir meiri vatnsheldni.