Skráðu þig á póstlistann og við sendum þér pökkunarlistann okkar svo þú gleymir engu fyrir næstu útilegu.
Yellowstone Lake
Þægilegur og fjölhæfur fellistóll með bólstraðri setu, háu baki og 4 stillingum.
Outwell Yellowstone Lake er vandaður útistóll sem hentar bæði við matarborðið og þegar þú vilt slaka á eftir daginn. Stóllinn er með þykkri bólstrun í setu og baki sem veitir góða einangrun og gerir hann sérstaklega þægilegan í notkun.
Hátt bakið veitir góðan stuðning við háls og herðar, og hægt er að stilla bakið í 4 mismunandi stöður.
Á bakhliðinni er netvasi fyrir smáhluti og stóllinn opnast og fellur saman á nokkrum sekúndum. Hann þarf enga samsetningu og meðfylgjandi burðartaska gerir hann þægilegan í geymslu og flutningi.
Eiginleikar
Tæknileg atriði