Skráðu þig á póstlistann og við gefum þér pökkunarlistann okkar svo þú gleymir engu fyrir næstu útilegu ásamt því að fá send regluleg tilboð, fróðleik og fleira.
Frá Outwell í Danmörku kemur Florida 6 Air uppblásna tjaldið. Tjaldið er klassískt braggatjald með stórum Dark Ambassador svefnherbergjum sem bæta svefn og draga úr birtu. Einfalt og þægilegt að tjalda með Rigid Air System sem tryggir hraða og örugga uppsetningu. Tjaldið er með einstöku innbyggðu Outwell Light System ljósakerfi sem gefur fallega og stillanlega birtu í alrými (aflgjafi fylgir ekki) ásamt Quick and Quiet seglahurðum á svefnherbergjum og inn í alrými.
Florida 6 Air er með sveigjanlegt Dual Front kerfi þar sem hægt er að nota tjaldið sem þriggja svæða tjald eða breyta fortjaldinu í skyggni með því að fjarlægja framhurðina. Framveggurinn er með möskva og PVC gluggum með aðskildum gardínum svo hægt er að stýra birtu og lofti að vild. Framhurðin er með togglufestingu sem opnar upp á fullt útsýni og loftflæði.
Tjaldið er með 6000mm vatnsheldni með límdum saumum, sem gerir það mjög hentugt fyrir íslenskar aðstæður og skorar hátt í vindprófunum með Aerodynamic Storm Protection 9 vegna lögunar tjaldsins og storm strappa sem halda því. Ytra tjaldið er úr Outtex® 6000 Express RS polyester efni með ripstop sem er PFC frítt og gefur framúrskarandi vatnsheldni og styrk. Slitsterkur, vatnsheldur og innsaumaður tjaldbotn heldur raka og vindi úti.
Mjög fljótlegt og einfalt er að tjalda því og ætti að taka aðeins 25 mínútur að reisa það, eða 11 mínútur til að vera tilbúið að flytja inn dýnur, stóla, töskur og slíkt. Auðvelt er að koma rafmagnsköplum að í gegnum litla lúgu á hlið tjaldsins.
Í svefnherbergjunum eru 230 cm löng Dark Ambassador herbergi með möskva loftunaropum sem tryggja þægilegan svefn. Vasar í svefnherbergjum geyma smáhluti. Hliðarhurð með möskvaneti gefur gott loftflæði og sveigjanlegt aðgengi.
Tæknileg atriði: