Skráðu þig á póstlistann og við sendum þér afsláttarkóða sem gefur þér 10% afslátt af næstu pöntun!
Arctic Chill 30 er öflugt og þægilegt pressukælibox fyrir útileguna, ferðalagið, bústaðinn eða bílinn. Boxið heldur mat og drykk köldum áreiðanlega og getur kælt allt niður í -20°C, sem gerir það mun öflugra en hefðbundin kælibox. Það hentar því bæði sem kælibox og sem frystibox, allt eftir þörfum hverju sinni.
Með hitastýringu frá -20°C til +20°C getur þú stillt nákvæmlega það hitastig sem hentar innihaldinu. Hitastiginu er stjórnað með LED skjá á boxinu eða í gegnum Outwell app með Bluetooth tengingu, sem gerir notkunina einstaklega þægilega.
Arctic Chill 30 er hægt að tengja bæði við 12V og 230V, svo það nýtist vel í bílnum á ferðinni og síðan beint í rafmagn á tjaldsvæðinu eða í bústaðnum. Boxið er með undervoltage protection sem hjálpar til við að verja rafgeyminn í bílnum, og anti-tilt virkni sem leyfir notkun við allt að 40° halla.
Hönnunin er sterkbyggð og praktísk, með harðgerðu plasthúsi, inniljósi, vatnsheldu innra byrði og lausu loki sem hægt er að opna frá vinstri eða hægri. Innra skilrúm hjálpar til við að skipuleggja innihaldið og USB tengi gerir þér kleift að hlaða minni tæki beint úr boxinu.
Arctic Chill 30 er frábær kostur fyrir þá sem vilja alvöru kælingu í útilegunni og vilja geta treyst því að matur, drykkir og viðkvæmar vörur haldist við rétt hitastig á ferðalaginu.
Eiginleikar:
Tæknileg atriði: