Skip to product information
1 of 11

Coleman

Weathermaster 4XL Air uppblásið tjald

Weathermaster 4XL Air uppblásið tjald

Venjulegt verð 189.990 kr
Venjulegt verð Tilboðsverð 189.990 kr
Tilboð! Væntanlegt
VSK innifalinn

Þetta uppblásanlega fjögurra manna tjald frá Coleman hefur góða lofthæð, rúmgott alrými og stór svefnherbergi sem hægt er að sameina í eitt. Það er hannað með FastPitch™ tækni þannig að aðeins þurfi einn til að tjalda því og á það að taka um 10 mínútur. Loftsúlurnar og strapparnir sjá til þess að tjaldið standi styrkum fótum jafnvel þótt dynji á og vindur blási. Svefnherbergisálman hefur BlackOut Bedroom® filmu sem hrindir frá sér 99% sólarljóss, sem hægir á hitnun og kólnun rýmisins, en það gerir það auðveldara að ná góðum nætursvefni og er því tjaldið hentugt íslenskum aðstæðum þar sem dagarnir eru langir á sumrin. Einnig eru flugnanet í tjaldinu. Vatnsheldni er 4500mm og saumar eru límdir. Auðvelt er að koma  rafmagnssnúrum inn í tjaldið í gegnum opnanlega lúgu með rennilás. Tjaldið kemur í tösku með hjólum svo auðvelt sé að flytja það. Handvirk loftpumpa fylgir með hverju tjaldi.

 

Tæknilegar upplýsingar:

  • Mál: 3.1 x 6.7 x 2.2 m
  • Fjöldi: 4 manna
  • Súlur: Uppblásanlegar loftsúlur
  • Svefnherbergi: 2
  • Svefnherbergisstærð: 140cm á breidd og rýmin eru 2. Hægt að renna frá til að sameina.
  • Svefnsvæði: 6m²
  • Blackout svefnherbergi
  • Alrými: 8.4m²
  • Innri lofthæð: 200cm
  • Límdir saumar fyrir vatnsheldni
  • Svæði: 20m²
  • Vatnsheldni: 4500mm
  • Gluggar: 3
  • UV vörn
  • Pökkuð stærð: 78 x 58 x 48cm
  • Þyngd: 31 kg
  • Taska á hjólum
  • Handvirk pumpa
Skoða lýsingu