Michigan 4 Air uppblásið tjald

Venjulegt verð 199.990 kr Tilboðsverð159.992 kr Sparaðu 20%
/
Öll verð eru með vsk.

  • Frí heimsending á pöntunum yfir 15.000 kr
  • Til á lager
  • Afgreitt eftir 1-4 virka daga

Dark inner myrkvuð svefnherbergi með Quick and Quiet entry hurð

ATH AFHENT EFTIR 20. MAÍ

Skoðaðu tjaldið hérna í 3D

Outwell Michigan 4 Air uppblásna tjaldið er rúmgott 4 manna fjölskyldutjald, hannað með áherslu á þægindi, gott rými og einfaldleika. Tjaldið er með tveimur Dark Inner myrkvuðum svefnherbergjum sem dregur úr birtu og bætir svefn. Eitt svefnherbergjanna er með Quick & Quiet hurð sem notar segla til að opna og loka hljóðlaust, auk rennilása fyrir öruggari lokun þegar þess er þörf. Einnig er hægt að taka skilrúm í svefnherbergjum niður til að gera það að einu herbergi.

  • Dönsk hönnun
  • 4 manna
  • Dark Inner myrkvuð svefnherbergi
  • 4000mm vatnsheldni
  • Vel skipulagt

Michigan 4 Air er með háa innri lofthæð (225 cm) og rúmgóðu alrými sem hentar vel fyrir fjölskyldur eða minni hópa. Tjaldið er með tveimur inngöngum: stórri framhurð sem hægt er að rúlla til hliðar og inngang á hlið inn í litla forstofu(e. wetroom) þar sem hægt er að geyma skó, kælibox og annað til að koma í veg fyrir að óhreinindi og raki fari inn í alrýmið.

Stöðugt og auðvelt að tjalda

Tjaldið er með fjórum loftsúlum sem auðvelt er að blása upp með meðfylgjandi pumpu. Álstangir milli loftsúlna bæta stöðugleika og halda tjaldinu sperrtu. Michigan 4 Air hefur verið prófað í vindi allt að 88 km/klst og er því vel til þess fallið að standast íslenskt veðurfar.

Tæknileg atriði:

  • Fjöldi: 4 manna
  • Svefnherbergi: 2 (með möguleika á að sameina í eitt)
  • Efni: Outtex® 4000 Select polyester (PFC-frítt, eldtefjandi, UV-vörn UPF 30+)
  • Vatnsheldni: 4000 mm (límdir saumar)
  • Loftsúlur: Rigid Air System (hámarksþrýstingur 9 psi / 0.6 bar)
  • Stangir: Álstangir 16–19 mm
  • Hæð: 225 cm (alrými), 210 cm (svefnherbergi)
  • Gólf: Tvöfaldur vatnsheldur polyethylene með saumuðu gólfi
  • Gólfsvæði: u.þ.b. 17,8 m²
  • Pökkunarstærð: 85 x 43 x 44 cm
  • Þyngd: 26,7 kg
  • Uppsetningartími: u.þ.b. 17 mínútur

This site is protected by hCaptcha and the hCaptcha Privacy Policy and Terms of Service apply.


Nýlega skoðað